Krónan þakkar fyrir sig með afslætti   
Verslun Krónunnar í Vestmannaeyjum

Krónan býður viðskiptavinum sínum upp á 5 prósent afslátt af öllum vörum í verslunum sínum á morgun, laugardaginn 22. janúar. Tilefnið er að fimmta árið í röð eru viðskiptavinir Krónunnar þeir ánægðustu á matvörumarkaði, samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynntar voru fyrr í dag.

Krónan hlaut hæstu einkunn meðal verslana á matvörumarkaði með marktækum mun eða 73,4 stig af 100 mögulegum og er þetta í annað sinn sem Krónan þakkar viðskiptavinum sínum með þessum hætti.

„Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar eru dýrmæt viðurkenning og mesta hvatning sem við getum fengið – ekki síst til okkar einstaka starfsfólks sem stendur vaktina alla daga í verslunum Krónunnar um land allt – sama hvað dynur á. Sem þakklætisvott höfum við ákveðið, líkt og í fyrra, að gefa öllum viðskiptavinum okkar „fimmu“ í formi 5 prósent afsláttar á morgun, laugardaginn 22. janúar, og þannig þakka kærlega fyrir okkur,” segir Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Afslátturinn verður því í boði í verslun Krónunnar í Vestmannaeyjum,  í dag laugardaginn 22. janúar.

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd af Prósent. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana, s.s. ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina.

Nýjustu fréttir

Sjónarhorn flakkarans á nýja hrauninu
Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar
Íslenska neiið fer um heiminn – fiskurinn í aðalhlutverki
Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardaginn
Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.